Fyrirtæki sem fylgjast með og draga úr sóun ná betri rekstrarárangri

Sóunargreining Laufsins sýnir stjórnendum hvar tækifærin til umbóta liggja. Með því að mæla algengustu þætti sóunar, eins og úrgang, orku, heitt vatn, matarsóun og auðlindanýtingu fá fyrirtæki skýra mynd af raunverulegum áhrifum sínum.

Sóunargreiningin tengist Laufaskólanum sem eykur umhverfisvitund starfsfólks og leiðir þannig til betri rekstrarvitundar. Með tímanum verður það hluti af menningu fyrirtækisins, starfsmenn taka betri ákvarðanir og eigendur sjá mælanlegan árangur.

Sóunargreining Laufsins gerir vinnu stjórnenda léttari, með skýra yfirsýn, sjálfvirka eftirfylgni og minni sóun í rekstri.