Árangur byggir á ábyrgum innkaupum

Vörukerfi Laufsins gerir stjórnendum kleift að tengja aðgerðir beint við raunveruleg
kaup og ábyrg vörumerki.

Þegar notandi vinnur að ákveðinni aðgerð, til dæmis „aðeins er keyptur umhverfisvottaður salernispappír eða handþurrkur“ getur hann með einum smelli séð hvaða fyrirtæki bjóða slíkar vörur, hver vottunin er og hvar þær eru fáanlegar.

Kerfið byggir á samvinnu við leiðandi birgja og framleiðendur, þar á meðal Stórkaup, sem bjóða fjölbreytt úrval umhverfisvottaðra vara — allt frá hreinsivörum og pappírsframleiðum til innanhússlausna.

Allar vörur sem birtast í kerfinu hafa viðurkennda umhverfisvottun samkvæmt ISO 14024-stöðlum og alþjóðlegum merkjum eins og Svaninum, Bláa englinum, Evrópublóminu, Bra Miljöval og Green Seal.

Svansmerkið
Evrópublómið
Blái engillin
Bra Miljöval
Green Seal


Laufið opnar vörukerfið sitt öllum ábyrgum fyrirtækjum sem bjóða umhverfisvænar vörur og þjónustu. Markmiðið er að skapa miðlægan vettvang þar sem fyrirtæki geta tengt sín innkaup við rekstrarávinning, minni sóun og ábyrga stjórnarhætti.