Aðgerðakerfi

Aðgerðakerfi Laufsins

Kerfisbundnar aðgerðir byggðar á alþjóðlegum ESG stöðlum

Kerfið nýtir aðferðafræði sem mælir árangur fyrirtækja út frá umhverfislegum, félagslegum og stjórnarlegum þáttum. Við byggjum á þekkingu og viðmiðum frá Umhverfis- og orkustofnun og helstu alþjóðastofnunum sem setja ramma um ábyrg vinnubrögð, meðal annars SASB, GRI, UN Global Compact og Nasdaq ESG Guide.

Hafa samband

Byggt á viðurkenndum alþjóðlegum stöðlum

Aðgerðakerfi Laufsins byggir á traustum grunni viðurkenndra alþjóðlegra staðla og samstarfsverkefna sem styðja við ábyrgan og árangursdrifinn rekstur.

Græn skref
UN Global Compact
SASB
Nasdaq ESG Guide
Yfir 120 aðgerðir

Kerfið inniheldur yfir 120 aðgerðir í þremur ESG flokkum

Hver flokkur skiptist í undirflokka sem gera stjórnendum kleift að nálgast verkefnin á skipulegan og framkvæmanlegan hátt.

120+Aðgerðir í kerfinu
3ESG meginflokkarUmhverfislegir · félagslegir · stjórnarlegir
Kerfisbundin nálgun á sjálfbærni
Kerfisbundin nálgun

Markvissar umbætur í öllum þáttum rekstursins

Þessi uppbygging tryggir að fyrirtæki geti unnið markvisst að umbótum í öllum helstu þáttum rekstursins — allt frá auðlindanýtingu og starfsumhverfi til gagnsæis og stjórnarhátta.

Umhverfislegir þættir
Félagslegir þættir
Stjórnarþættir
Umhverfis- og Orkustofnun

Byggt á Grænum skrefum

Umhverfisaðgerðir Laufsins byggja á verkefninu Græn skref, sem veitir fyrirtækjum traustan ramma til að vinna að kerfisbundnum umbótum í umhverfismálum í daglegum rekstri.

Með þessum stöðlum að leiðarljósi hjálpar Laufið fyrirtækjum að innleiða aðgerðir sem hafa raunveruleg áhrif á rekstur, styrkja traust og bæta árangur til lengri tíma.

Byrjaðu sjálfbærnivegferðina í dag

Laufið hjálpar fyrirtækjum að innleiða sjálfbærni á skipulagðan og mælanlegan hátt. Hafðu samband og við sýnum þér hvernig.

Hafa samband