Heildarlausn til að draga úr sóun og bæta rekstur sveitarfélaga
Gagnadrifinn rekstur fyrir sveitarfélög og stofnanir
Í hugbúnaðinum fá sveitarfélög verkfæri sem styðja við markmið þeirra um skilvirkari rekstur og betri nýtingu fjármuna. Lausnirnar gera stofnunum kleift að bera saman árangur, vinna þéttar saman og skapa forsendur fyrir gagnadrifinn rekstur og ábyrg vinnubrögð.
Hafðu sambandMælaborð
Fjögur sjónarhorn — stjórnandi, rekstur, fjármál og mannauður — veita heildaryfirsýn yfir allar stofnanir sveitarfélagsins á einum stað.
Stofnanir
Berðu saman árangur stofnana, greindu veikleika og finndur tækifæri til samstarfs og hagræðingar.
Yfir 120 græn skref
Aðgerðamiðuð skref byggð á UFS-aðferðafræði sem ná yfir umhverfis-, félagslega og rekstrartengda þætti.
Rekstur
Fylgstu með orkunotkun, heitu vatni og rekstrarkostnaði — greint niður á stofnanir og eignir.
Úrgangur
Ítarleg úrgangsgreining eftir flokkum, flokkunarhlutfall og samanburður milli stofnana.
Kolefnisreiknir
Reiknaðu losun samkvæmt GHG-staðli og greindu hvar stærstu tækifærin til úrbóta liggja.
Mælaborð fyrir sveitarfélög
Í Laufinu hafa sveitarfélög aðgang að miðlægu mælaborði sem sýnir árangur stofnana og sveitarfélagsins í heild. Heildstæð yfirsýn skapast því fyrir ábyrgðaraðila rekstrar- og umbótamála hjá sveitarfélögum, sem skapar færi til að ná settum markmiðum og bæta nýtingu fjármuna.
Yfir 120 aðgerðamiðuð skref
Aðgerðir Laufsins eru hannaðar til að gera fyrirtækið skilvirkara, draga úr sóun og auka arðsemi. Kerfið byggir á alþjóðlega viðurkenndri UFS-aðferðafræði þar sem lögð er áhersla á umhverfislega, félagslega og rekstrartengda þætti – því rannsóknir sýna að ávinningur og hagkvæmni felast í öllum þessum flokkum. Með því að vinna markvisst í þessum þáttum byggir þú upp sterkara, traustara og arðbærara fyrirtæki til framtíðar.
Stöðumat sveitarfélaga í þremur skrefum
Mæling á umhverfisvitund í völdum stofnunum.
Niðurstöður settar. Í samhengi við rekstrarkostnað sveitarfélagsins.
Niðurstöður kynntar innan 6 vikna.
Fleiri lausnir fyrir sveitarfélög
Markmið og aðgerðaáætlun
Settu markmið, forgangsraðaðu verkefnum og fylgstu með framvindu.
Laufaskólinn
Fræðsla og námskeið um sjálfbærni fyrir starfsfólk stofnana.
Birgjamat
Mat á birgjum og sjálfbærnistöðu í virðiskeðju sveitarfélagsins.
Eignaskrá
Skrá yfir fasteignir, ökutæki og eignir með korta- og samanburðarsýn.
Betri samhæfing sjálfbærrar þróunar stofnana
Efling sjálfbærrar þróunar meðal stofnana sveitarfélaga er mikilvægur liður í því að takast á við áskoranir, ná settum markmiðum og stuðla að blómstrandi samfélagi. Í hugbúnaði Laufsins fá stofnanir tækifæri á að vinna markvissara sjálfbærnistarf sem um leið skapar heildstæðari sýn á stöðu sveitarfélagsins á því sviði.
Hafðu samband