Eykur rekstrarvitund fyrirtækja og sveitarfélaga
Laufið hjálpar fyrirtækjum að fá skýra mynd af eigin rekstri, greina sóun og finna leiðir til að bæta nýtingu fjármuna. Kerfið brýtur flókin mál niður í framkvæmanlegar aðgerðir sem leiða til betri árangurs og hagræðingar.
Kjarnalausnir fyrir fyrirtæki
Kjarni
19.900 kr.
á mánuði
* 12.900 kr.
✓Aðgerðakerfið
✓Laufaskólinn / Freðsla
✓ESG vörur & pjónustur
Fyrir fyrirtæki sem vilja hefja sjálf bærnivegferðina á einfaldan hátt.
Kraftur
32.900 kr.
á mánuði
* 19.900 kr.
✓Aðgerðakerfið
✓Laufaskólinn / Freðsla
✓ESG vörur & pjónustur
✓Birgjamat
✓Kolefnisútreikningur
Fyrir fyrirtæki sem vilja mæla áhrif og ná fram virðisaukandi árangri.
Klettur
44.900 kr.
á mánuði
* 27.900 kr.
✓Aðgerðakerfið
✓Laufaskólinn / Freðsla
✓ESG vörur & pjónustur
✓Birgjamat
✓Kolefnisútreikningur
✓Sóunargreining
✓Aukinn stuðningur og ráðgjöf
Fyrir fyrirtæki sem vilja draga úr sóun og hámarka rekstrarhagkvæmni.
Hluti af þjónustu Laufins fellur undir fræðslu og þjálfun starfsfólks.
Því geta fyrirtæki sem eru aðilar að Samtökum atvinnulífsins eða Félagi atvinnurekenda fengið
allt að helming kostnaðar endurgreiddan úr starfsmenntasjóði í gegnum Áttina – eina sameiginlega umsókn fyrir alla helstu sjóði.
Viðbótarþjónusta Laufins
Fyrirtæki geta bætt við sérverkefnum og ráðgjöf sem styðja við
sjálfbærnivegferðina og styrkja innviði rekstrarins.
Umhverfisstefna
190.000 kr.
Skýr og hagnýt stefna sem uppfyllir lög og reglur um umhverfismál.
Sjálfstæð þjónusta sem má samþætta hvaða pakka eða lausn sem er.
Sjálfbærnistefna
290.000 kr.
Heildstæð stefna sem sameinar umhverfis-, félagslega og stjórnarlega þætti (ESG).
Sjálfstæð þjónusta sem má samþætta hvaða pakka eða lausn sem er.
Vinnustofa
frá 49.000 kr.
Hagnýt fræðsla og stefnumótun fyrir stjórnendur og starfsfólk.
Lögð áhersla á virkni og raunhæfar aðgerðir.
Ráðgjöf
14.900 kr./klst.
Sérsniðin ráðgjöf sem tekur mið af umfangi, stöðu og markmiðum hvers fyrirtækis.
Yfir 120 aðgerðamiðuð skref
Aðgerðir Laufsins eru hannaðar til að gera fyrirtækið skilvirkara, draga úr sóun og auka arðsemi. Kerfið byggir á alþjóðlega viðurkenndri UFS-aðferðafræði þar sem lögð er áhersla á umhverfislega, félagslega og rekstrartengda þætti – því rannsóknir sýna að ávinningur og hagkvæmni felast í öllum þessum flokkum. Með því að vinna markvisst í þessum þáttum byggir þú upp sterkara, traustara og arðbærara fyrirtæki til framtíðar.
Settu þér markmið og forgangsraðaðu aðgerðum
Laufið hjálpar stjórnendum að halda utan um markmið, skipuleggja aðgerðir og fylgjast með árangri yfir tíma. Þannig verður auðveldara að sjá framvindu, forgangsraða verkefnum og tryggja að markmiðin náist á skilvirkan hátt.
Reiknaðu kolefnislosun frá rekstri
Kolefnisreiknir Laufsins sýnir hversu mikið fyrirtækið losar og hvar stærstu áhrifin liggja.
Með því að reikna kolefnissporið er í raun verið að slá tvær flugur í einu höggi með því að uppfylla nýjar kröfur um gagnsæi og ábyrgð, en einnig að greina hvar sóun, óhagkvæmni og tækifæri til hagræðingar eru til staðar.
Reiknivélin byggir á GHG-staðli og losunarstuðlum frá DEFRA, ásamt íslenskum stuðlum fyrir hita og rafmagn. Hún er einföld í notkun og leiðir stjórnendur í gegnum ferlið skref fyrir skref.
Virkjaðu birgja í þinni virðiskeðju
Með aðgangi að áskriftarleiðinni Krafti geta fyrirtæki virkjað birgja sína og fengið skýra mynd af starfsháttum þeirra. Þannig geta stjórnendur greint áhættu, komið auga á veikleika og dregið úr líkum á atvikum sem hafa áhrif á orðspor, afhendingaröryggi eða rekstrarstöðugleika.
Birgjamat Laufsins er frábært verkfæri til að byggja upp gagnsæi, traust og áreiðanlegt samstarf í allri virðiskeðjunni.
Betri yfirsýn yfir lykilþætti rekstursins
Með því að greina þessa þætti á einfaldan hátt fá fyrirtæki betri stjórn á árangri, geta dregið úr sóun og aukið rekstrarhagkvæmni til framtíðar.







