Atomika samstarf

Sjáðu hvað gerist í hitakerfinu

Í samstarfi við Atomika · rauntímagögn · skiljanlegar niðurstöður

Orka sýnir notkun, kostnað og reikninga. Atomika sýnir hvað er að gerast inni í hitakerfinu — og frávikakerfi Laufsins tengir þetta saman og lætur réttu aðilana vita.

Hafa samband
Orka

Sýnir notkun, kostnað og reikninga fyrir bygginguna.

Atomika

Sýnir hvað er að gerast í hitakerfinu — rennsli, hita og nýtingu heita vatnsins.

Frávikakerfi

Tengir gögnin saman, greinir frávik og lætur réttu aðilana vita.

Mælaborðið

Svona lítur ATOMIKA-greiningin út í Laufinu

Lykiltölur hitakerfisins, staða og frávik birtast á einum stað — ásamt yfirliti yfir notkun yfir valið tímabil.

ATOMIKA-greining í mælaborði Laufsins (demo-gögn).

ATOMIKA-greining í mælaborði Laufsins (demo-gögn).

Hitakerfið

Lykiltölur úr hitakerfinu á mannamáli

Atomika les rennsli, framrás, bakrás, hitamun og hitaálag. Laufið þýðir tæknigögnin yfir í skiljanlega stöðu — grænt, gult eða rautt — svo þú sérð strax hvort kerfið nýti heita vatnið vel.

RennsliHversu mikið heitt vatn fer um kerfið (L/s)
FramrásHiti vatnsins inn í kerfið (°C)
HitamunurMunur á fram- og bakrás — mælir varmanýtingu (°C)
HitaálagHversu mikinn hita kerfið kallar eftir (kW)
Frávik og tilkynningar

Frávikakerfið lætur réttu aðilana vita

Þegar gögnin benda til óhagkvæmni — t.d. of há bakrás eða lítill hitamunur — býr Laufið til frávik með skýringu og ráðlagðri aðgerð. Tilkynningar berast í kerfinu, með tölvupósti eða SMS, líka til ytri tengiliða eins og þjónustuaðila.

Sjálfvirk frávikKerfið greinir óhagkvæmni út frá rauntímagögnum
Mannleg túlkunEkki bara tölur — heldur hvað þær þýða og hvað á að gera
TilkynningarÍ appi, tölvupósti eða SMS — á rétta aðila

Viltu sjá Atomika í Laufinu?

Við sýnum þér hvernig Atomika-greiningin og frávikakerfið vinna saman í rekstri byggingarinnar þinnar.

Hafa samband